
Þór
Mikil vakning varð í æskulýðsmálum í Vestmannaeyjum í byrjun 20. aldarinnar.
Steinn Sigurðsson skólastjóri Barnaskólans í Vestmannaeyjum beitti sér fyrir hreyfingu ungs fólks í Vestmannaeyjum. Hann kenndi sund, glímu og knattspyrnu.
Ungmennafélag Vestmannaeyja er talið hafa verið stofnað árið 1907 að frumkvæði Steins Sigurðssonar.
Ungmennafélagið lagði hinsvegar upp laupana árið 1914, en þá flutti Steinn frá Vestmannaeyjum og má leiða að því líkum að með brottflutningi hans hafi félagið lognast út af.
Segja má að Íþróttafélagið Þór hafi verið eins konar arftaki Ungmennafélagsins, en íþróttafélagið var stofnað árið 1913. Þá starfaði annað ungmennafélag í Vestmannaeyjum á árunum 1927-1929 og gaf meðal annars út félagsblað.
Íþróttafélagið Þór var starfrækt frá 1913-1996.
Bæði Knattspyrnufélag Vestmannaeyja og Ungmennafélag Vestmannaeyja virtust hafa misst mikinn kraft úr starfinu fljótlega í byrjun annars áratugar tuttugustu aldar.
Guðmundur Sigurjónsson, íþróttakennari frá Reykjavík, kom til Eyja gagngert til að halda námskeið fyrir unga fólkið í ýmsum íþróttum.
Guðmundur beitti sér fljótlega fyrir stofnun sérstaks íþróttafélags. Stofnfundur þessa nýja íþróttafélags var haldinn 9. september 1913 í Þinghúsinu. Stofnfélagar voru 13 talsins og voru þar á meðal margir nafnkunnir menn í bæjarfélaginu.
Týr
Knattspyrnufélag Vestmannaeyjum (KV) var sameiginlegt lið Þórs og Týs uppi á landi og þegar gesti bar að garði. Átta árum eftir stofnun Þórs eða árið 1921, kom Knattspyrnufélagið Týr til sögunnar.
Aðdragandinn að stofnun Týs var sá að árið 1920 voru bæði Þór og KV illa stödd fjárhagslega. Nokkrir strákar á 18 og 19 aldursári sem höfðu takmarkaðan aðgang að tuðrum innan félagana ákváðu að fjárfesta saman í bolta, þeir höfðu reynt að fá þessu breytt og buðu fram Jóhann Gunnar Ólafsson í stjórn KV.
Það gekk ekki og stofnuðu því Tý samhliða fjárfestingu sinni í tuðrunni. Stofnendur félagsins voru 45 talsins, flestir innan við tvítugt.
Íþróttabandalag Vestmannaeyja (ÍBV)
ÍBV hét upphaflega Knattspyrnufélag Vestmannaeyja (KV) og var stofnað 1903. Þegar Þór og Týr voru það bara yngriflokkar og kvennalið. Spiluðu annars alltaf sem KV í meistaraflokki karla.
Eftir að Þór og Týr voru aflögð í desember 1996 var ÍBV stofnað.
Tilgangur félagsins var að taka yfir flokkastarf yngri félaga knattspyrnu og handknattleiksdeilda félaganna. Í upphafi voru hugmyndir um að láta félagið heita KH-ÍBV, en var að lokum nefnt ÍBV, KH-ÍBV var skammstafað af orðinu Knattspyrnu- og Handknattleiksfélags Íþróttabandalags Vestmannaeyja.
Í kjölfarið að stofnun ÍBV var starfsemi Þórs og Týs endanlega lögð niður. Þar með var orðið eitt félag um starfsemi knattspyrnu og handknattleiks í Vestmannaeyjum.
ÍBV hafði hingað til einungis verið sameiginlegt merki félaganna útá við, en hafði haft lítið sem ekkert bakland.
Það hafði í raun verið eignalaust og enginn vildi eiga það þegar illa gekk. Það hafi því lent á fáum aðilum að reka félagið fyrir sameininguna.
Einnig hafi verið mikið óhagræði verið að því að reka þrjár einingar með tveimur þjálfurum og framkvæmdastjórum og tvöföldu kerfi á öllu.
Því hafi verið skynsamlegt að sameina rekstur þessara tveggja félaga undir eitt merki.
Árið 2011 var sett á laggirnar Íþróttaakademía ÍBV í samvinnu við Framhaldskólann í Vestmannaeyjum.
Ári síðar bættist Grunnskóli Vestmannaeyja við í samstarfið.Eimskipshöllin er knattspyrnuhús sem er hálfur knattspyrnuvöllur að stærð en húsið er stækkanlegt í heilan völl. Í húsinu er 50 sinnum 60 metra knattspyrnuvöllur með góðu gervigrasi. Þá eru brautir fyrir frjálsar íþróttir lagðar tartanefni. Framkvæmdir við húsið hófust í ársbyrjun 2009 og var húsið vígt 8. janúar 2011. Það hefur nýst okkur vel, sérstaklega á veturna.
Hér má sjá merkið hjá íþróttafélags Þórs

Hér má sjá merki fótboltafélags Týs.

Til gamans má geta að þeir sem héldu með Þór þoldu ekki græna litinn og öfugt með þá sem héldu með Tý.
Það er kannski ástæða þess að við sem erum að gera þetta verkefni þolum ekki grænan enda er sá litur viðurstyggilegur og er eins og það sé búið að snýta sér í búninginn.
Hér má sjá merki hjá Íþróttabandalagi Vestmannaeyja
