top of page

Rannsóknarspurning : Hvað gerir fótbolta að svona vinsælli íþrótt í Vestmannaeyjum?

Það er ekkert eitt svar rétt en það eru nokkrar ástæður fyrir því að fótboltinn sé svona vinsæll í eyjum.

Svar frá foreldra : ÍBV er félag í Vestmannaeyjum sem býður upp á að æfa t.d. bæði Handbolta og Fótbolta fyrir aðeins eitt æfingagjald per. barn. Það er mjog vinsælt hjá ungum krökkum í Vestmannaeyjum að æfa bæði handbolta og fótbolta þangað til að þau eru kominn á aldur til að þurfa að velja á milli.

Svör frá krökkum sem æfa eða æfðu : Krakkarnir svöruðu misjafnlega, þeir sögðu flestir að félagsskapurinn skipti miklu máli. Sumir sögðu að þetta væri skemmtilegasta íþróttin sem völ er á, meðan aðrir sögðu að þetta væri brennandi áhugamál þeirra en hinir voru dregnir í þetta á yngri árum.

 Við gerðum nokkrar kannanir á bæði fullorðnum sem og unglingum.

 Við skrifum hér að neðan hvað okkur fannst koma útúr svörunum frá þeim. 

Hefur gengi liðsins áhrif á hvort þú mætir á völlinn ? 

Margir sögðu að gengi liðins hefur engin áhrif á sig til þess að mæta á völlinn því að stuðningur þeirra er nauðsynlegur þegar að liðinu gengur illa.

Svo voru nokkrir sem að sögðu að það er hundleiðinlegt að mæta á völlinn þegar að þeir eru alltaf að tapa. Þannig að það hefur mikil áhrif á þá hvernig liðinu gengur. 

Afhverju mætir þú á völlinn ? 

Margir mæta á völlinn vegna þess að þeim finnst gaman að fylgjast með sínu heimaliði og styðja sitt lið. Sumir mæta bara í góðu veðri ss. finnast leiðinlegt að fylgjast með fótbolta í vondu veðri. Svo mæta sumir bara þegar það er eitthvað frítt t.d. Pylsur,Pitsur eða Kleinuhringir og það er fólkið sem að maður sér sárasjaldan eða eins og orðatiltækið segir : Sjaldséðir hvítir hrafnar. 

Flestir mæta á völlinn þegar að það eru fríar pylsur, blíða, þegar að liðinu gengur vel og frítt inná völlinn. 

Gengi liðsins og áhorf

 

Öll árin vorum við í Úrvalsdeild nema 2007 og 2008 

 

bottom of page