

Viðtal 1
Nafn : Ólafur Björgvin Jóhannesson
Aldur : 28 ára
Afhverju mætir þú á völlinn : Ég er í knattspyrnuráði og er mikill aðdáandi líka.
Hefur gengi liðsins áhrif á hvort þú mætir á völlinn: Nei, ég þarf að vera á öllum leikjum þar sem ég vinn við þetta. En ég myndi mæta á alla leiki þrátt fyrir það.
Uppáhaldsleikmaður: Ég held mikið uppá Hafstein Briem og svo Sindra. Þeir eru mjög flottir. En ég geri samt ekki uppá milli leikmanna liðsins.
Hvað heldurðu að liðið þitt endi í deildinni: Ég er sáttur að vera í 4.-5. sæti.
Hversu lengi hefurðu fylgst með íslenskum fótbolta: Bara síðan ég man eftir mér.
Hverju má breyta til að gera íslenskan fótbolta ennþá skemmtilegri: Það má byrja með því að bæta dómgæsluna og svo væri flott að lengja mótið um einn mánuð og bæta við tveimur liðum.
Viðtal 2
Nafn : Ólafur Már Sigurðsson (stuðningsmaður beggja liða á leik Hugins og ÍBV)
Aldur : 62 ára
Afhverju mætir þú á völlinn : Af því að það er stórleikur milli tveggja liða sem að ég dái og þrái.
Hefur gengi liðsins áhrif á hvort að þú mætir á völlinn : Nei ég styð bara mína menn.
Uppáhalds leikmaður : No comment
Hvar heldurðu að liðið þitt endi í deildinni : 3. sæti
Hversu lengi hefurðu fylgst með íslenskum fótbolta : Frá því að ég var 5 ára og svo megið þið bara reikna það út.
Hverju má breyta til að gera íslenska boltann enn skemmtilegri : Bara halda þeirri braut sem við erum á núna. Ég held að fótboltinn sé að batna. Með tilkomu gervigras-hallanna og vallanna ég held að það sé hægt að bæta mikið með gervigrasi á Íslandi.
Viðtal 3
Nafn : Páll Eiríksson (Formaður Hvítu Riddarana)
Aldur : 14 ára
Afhverju mætir þú á völlin : Til þess að styjða mitt lið.
Hefur gengi liðsins áhrif á hvort þú mætir á völlin? : Nei alls ekki.
Uppáhaldsleikmaður: Avni Pepa
Hvar heldurðu að liðið þitt endi í deildinni : 5. sæti
Hversu lengi hefurðu fylgst með ÍBV : Frá því ég var pínulítill pjakkur.

